Hér kynnist þið innrænum öflum...
Innræn öfl eru t.d. eldgos, jarðskjálftar, myndun fellingafjalla (samrek) og gliðnun úthafshryggja. Innræn öfl valda alls konar tjónum allstaðar í heiminum. Innræn öfl gerast út af iðustreymi í jarðmöttlinum. Þau byrjuðu þegar jörðin myndaðist. Áhrif innrænna afla eru t.d. hreyfing jarðskorpu flekanna, sem breytir hvernig yfirborð jarðar lítur út. Það lætur líka koma eldgos og jarðskjálfta, sem geta valdið alls konar breytingum. Allt sem er innan úr plánetunni jörð er talið með sem innræn öfl. Algengustu innrænu öflin eru eldgos. Eldgos gerist þegar seigfljótandi efni í möttlinum sem kallast kvika berst upp á yfirborð jarðar, út af breytingum í jarðskorpunni. Það gerist t.d. við jarðskjálfta. Þegar það gerist, brotnar skorpan og gosið byrjar.