Árið 1883, 26. ágúst klukkan eitt um morguninn, gaus Mt. Krakatoa, eldfjall á litlu eyjunni Krakatau í Indónesíu. Allt í einu, skaust gas 24 km. upp í loftið. 36000 manns dóu þann dag, og margir aðrir dóu af veikindum frá öskunni og á eftir tsunami. Útaf eldgosinu var hiti jarðarinnar 1.2 gráðum kaldari næstu fimm ár á eftir. Þetta var stærsta gos Krakatoa. Á undan, og á eftir, hefur Krakatoa gosið a.m.k. 34 sinnum. En Krakatoa er ekki virkasta eldstöðin í heimi. Þau eldfjöll eru Kilauea í Hawaii, Etna á Ítalíu og Piton de la Fournaise á Réunion eyju. Auðvitað, á þessum stöðum, og annars staðar, er fólk byrjað að verjast gegn jarðskjálftum með því að byggja betri hús. Í Indónesíu eru veggirnir á húsum byggðir úr múrsteinum og tengdir við þakið gegn um steyptar súlur og undir húsunum eru gömul dekk fyllt með sandi og steinum, sem tekur á móti hreyfingu jarðar. Þessi hús geta staðist jarðskjálfta sem mælast 9,1 stig. Þetta er bara ein af mörgum leiðum sem fólk notar til að verjast jarðskjálfta.